|
"Hryllingskjallarinn"... þessi mynd á eftir að líta dagsins ljós einn daginn "A horrible secret burried under your home"... held að ég eigi eftir að heyra bíóröddina segja þessi orð... Á ekki orð... En að öðru máli sem er þó tengt þessu á sinn hátt... Já, þú hafðir rétt fyrir þér ef þú giskaðir á *** *****... Maðurinn sem nauðgar skynviti þjóðarinnar á einum af fréttavefjum landsins... Ég er búinn að fá mig fullsaddann af þessum illa skrifuðu pistlum hans, þeir eru annar hryllingur... ætla að koma með smá upptalningu á því sem fór í taugarnar á mér við lesningu dagsins.... 1# Vinur Fritzl er í losti yfir fréttunum..... segist ekkert skilja í þessu.... (Ef maðurinn væri í losti, hefði hann væntanlega ekki tjáð sig um málið.) 2# Fritzl fór til Taílands eftir að hún var búin að vera í tólf ár í dýflissunni... árið 1988 (Í minni bók væri hún þá búin að vera í 32 ár í þessum kjallara... en hún var bara í 24.) 3# Ungur maður horfði á kærustuna sína deyja í baksýnisspeglinum.... (Kærastan var 36 ára gömul... og hann var eldri... óþarfi að leggja áherslu á ungur maður þegar fólk er komið yfir 30 að mínu mati.) 4# Gullskip fannst... Hann var fyrsti vestræni sæfarinn sem sigldi fyrir Góðrarvonarhöfða. (Þetta er reyndar frekar óljóst en mér finnst ósennilegt að staðnum hafi verið gefið þetta nafn á íslensku...) 5# Staðfest að öll fjölskylda Rússakeisara fundin... leifar sem fundust í fyrra voru víst jarðsett árið 1998 í Keisaragrafhýsinu... (skil ekki...) Upptalningin verður ekki lengri... Meiri rugl færslan... biðst afsökunar. |
| Leave a Comment: |