|
En þannig er mál með vexti að daginn sem ég fór til London var ég boðaður á fund hjá fyrirtæki sem vantaði starfsmann og þar var mér tjáð að þeir ættu von á einum öðrum þann daginn og valið stæði á milli okkar tveggja, þeir voru búnir að vera að leita lengi og fara í gegnum þónokkuð magn af umsóknum, sá sem ég spjallaði við sagði að þetta yrði útkláð á símafundi á milli toppana í fyrirtækinu eftir báða fundina við okkur og að hann myndi þá hafa samband við mig seinna um daginn og láta mig vita hvort að ég fengi starfið eður ei. Svo nokkrum klukkutímum seinna, ég alveg að deyja úr spenningi yfir London ferð og þessu símtali kom loksins símtalið sem ég hafði beðið eftir í nokkra mánuði. Þetta var yfirmaðurinn sem ég hafði rætt við á fundi fyrr um daginn, hann spurði mig hvort að ég hefði ennþá áhuga á starfinu og sagði mér að ef svo væri þá væru þeir búnir að ákveða að ég væri rétti maðurinn í starfið. Svo var ákveðið að daginn sem ég kæmi frá London myndi ég mæta og skrifa undir ráðningarsamning, sem ég og gerði. Og seinasta vika var fyrsta vikan mín í starfi hjá þessu fyrirtæki sem Grafískur hönnuður. Fyrsta vikan gekk vel og starfið er mjög spennandi. Smell you later! |
| Spíra April 9, 2008 05:41 PM PDT HA? HVAR?? grafískur hönnuður?? ég á ekki orð! innilega til hamingju (og hér er ég sveitt að reyna að komast í lhí til að læra það omg) og já þú ert svo "heppinn" að missa alltaf af mér, ég er alveg lúmskt mikið inná msn :Þ gaman að heyra frá þér drengur!! | ||
| Erla Gerður Viðarsdóttir April 9, 2008 02:33 PM PDT hei til hamingju með vinnuna, ótrúlega flott! | ||
| sunsun April 6, 2008 10:45 PM PDT vúúúhhhúúú..til lukku snúllumús :) | ||
| Leave a Comment: |