<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed


15.3.08
LAKK-GRÍS!

London eftir 4 daga, get ekki beðið...

En annars er ég búinn að vera í afleysingum hérna... í tvo daga var ég að vinná á lager  með svínafóður... var að stafla 25 kg pokum á bretti úr gámum... 1 tonn pr palletta... tæmdum tvo gáma á dag tveir saman.og þegar ég fór svo þriðja daginn að vinna í dansk supermarked sem er ekki ósvipað högum... svona fyrirtæki sem á verlsunarkeðjur... var að vinna á lagernum við að taka saman pantanir sem voru að fara á Føtex og Bilka og fleiri keðjur, þá hélt ég að hendurnar myndu detta af mér... og ég þurfti líka að hjóla 10 kílómetra í rigningu og mótvindi var frekar dasaður eftir þann dag þegar ég hjólaði heim og af furðulegri ástæðu var líka mótvindur alla leið heim Shocked
En þegar ég kom heim hjólaði ég út á pósthús og sótti pakkann sem var sendur frá liðinu heima á Eikjuvogi tveir fullir pokar af lakkrís tvö páskaegg og Cheerios... jebb Cheerios Gréta nefnilega borðar bara Cheerios í morgunmat... og það er bara ekki til í danmörku svo að við fáum það sent frá íslandi Tongue.

En að öðru, ég fékk skemmtilegt símtal í vikunni frá manni ssem ég hafði aldrei talað við áður, hann hringdi og sagðist vera búinn að taka við af manni sem ég hafði áður rætt við útaf starfi hjá netfyrirtæki sem ráðningarstjóri, og hann hafði sent verkefni sem ég setti upp fyrir fyrirtækið á fyrirtækið og þeim fannst það víst "interessant" og hann vildi heyra hversu vel ég skildi dönsku og eftir smá spjall þá sagði hann mér að hann vildi fá mig á fund, svo að ég er á leiðinni á fund með honum á mánudaginn og lofa að tilkynna útkomuna af fundinum hér.. sama hvort að hún verður jákvæð eða neikvæð Big Smile.

En talandi um símtöl, þá svaraði ég í símann hennar Grétu á meðan að hún var á æfingu. Og strákurinn á hinum endanum sagðist hafa séð auglýsinguna mína í blaðinuog ég spurði hvaða auglýsingu? Heyrðu já þá hafði hann séð auglýsinguna mína þar sem ég var að selja mótorhjól og hann vildi koma að skoða það... og ég sagði já nei... ég hef ekki auglýst neitt mótorhjól... þá spurði hann hvort að hann mætti tala við þann sem gerði það, sagði honum bara að það væri enginn á þessu heimili sem ætti mótorhjól hann væri bara að hringja í vitlaust númer og hann sagði þá jájá ég hélt að þú værir að auglýsa mótorhjól..... bless... og skellti á, furðulegt samtal það.

Við fórum út í Bilka í gær ætluðum að kaupa þvottagrind afþví að hin gaf sig... keyptum í matinn, kökukefli, vín og ýmislegt... þegar við settumst inn í strætó sagði Gréta... ooohhhh neeiii... veistu hvað við gleymdum að kaupa.... þið getið reynt að hjálpa mér að finna það út því ég stend á gati.... Wink

Smell you later. Hahh hahhh....Shades

Posted at 10:52:07 am by Dori_Ess
Comments (6)  

4.2.08
Blogg!

Hef voðalega lítið að skrifa um... er voðalega mikið búinn að vera inni þar sem það hefur verið frekar súrt veður...

Annars er ég búinn að teikna tvo karaktera á seinustu vikum og vinna í tölvunni, einn fyrir Netvistun í sambandi við verkefni, og hinn fyrir SMS (nemendafélag MS)

Og ég er bara búinn að vera að taka til í dag og þrífa og brjóta saman þvott ásamt því að hafa verið að vinna í tölvunni og gæða mér á vatndeigsbollum því Gréta tók sig til og bakaði góðan slatta í gær!

Og já ég er líka búinn að vera að leita að vinnu á fullu, hlýtur eitthvað að fara að gerast í þeim málum...

Posted at 7:21:28 pm by Dori_Ess
Comment (1)  

27.1.08
Sól, handbolti og grjónagrautur.

Það er sól, það er sunnudagsmorgun og ég á leið á handboltaleik!
Jebbs núna fer ég á heimaleiki Brabrand að horfa á Grétu tudda niður andstæðinga sína. (Fékk seinast tvisvar 2 mín útaf) 2 af þrem skiptum sem einhver var settur útaf en hin stelpan sem var sett útaf var í hinu liðinu.

Ég fer að henda upp ljósmyndasíðu... þarf víst að gera það þegar maður flytur úr landi hef ég heyrt.

Núna er ég annars bara að vinna í því að fá vinnu. Vona að ég verði kominn með vinnu fyrir næstu helgi. En gæti alveg tekið lengri tíma.

Bíllinn minn er víst kominn í lag heima á íslandi... hef hugsað til hans nokkrum sinnum þó að lærvöðvarnir mínir séu alveg sáttir við þetta fyrirkomulag.

Í gær borðaði ég slátur og kartöflumús! Snilld að fá slátur í matinn í danmörku, en það var ömmu Grétu að þakka þar sem hún sendi það í pósti ásamt harðfiski og grjónagraut... slátrið og harðfiskurinn voru auðvitað eins og það átti að vera, en bjartsýnin að senda grjónagraut er gífurleg... því í grjónagraut er mjólk og endilega gerið tilraun á því hvað það tekur marga daga úr ísskáp fyrir mjólk að verða súra :)
Allavega varð hún nokkuð súr á þessu 2 daga ferðalagi yfir Atlantshafið.

Jæja ég verð víst að leggja af stað á hjólinu mínu svo að ég verði ekki of seinn á handboltaleikinn.

Bless í bili!

Posted at 1:12:36 pm by Dori_Ess
Comments (5)  

8.1.08
Fyrsta færslan frá DK

Jæja, þá er maður kominn til Danmerkur!

Dótið mitt kemur víst viku of seint.... verð að lifa með því held ég.
Annars er þetta búið að vera mjög gaman í þessa daga sem ég hef verið hér.
Frábær bær, ég ráfaði einn um bæinn í gær að leit að símkorti, prentara og strætókorti, sem væri nú ekki frásögu færandi nema það rigndi og snjóaði allan tímann, og úlpan mín varð gegnblaut. En þegar við komum heim var farið úr blautu fötunum og ég lagaði heitt kakó á meðan Gréta bjó til vöfflur! Var mjög næs.

Síðan skellti ég í lasagna í fyrsta skipti á ævinni i gær og það var barasta alveg mjög gott hja mer (þó ég segi sjálfur frá).

Annars er ég núna bara að skoða atvinnumarkaðinn hérna á netinu og taka til og þrífa :D sem er ágætt hehe.

En jæja ætla að vaska upp!

Hafið það gott , Over and out.

Og já, þeir sem þurfa að ná í mig geta haft samband við mig í síma 490-7431 kostar jafn mikið og að hringja í íslenskt heimanúmer!


Posted at 12:02:09 pm by Dori_Ess
Comments (8)  

14.12.07
Hátalarararar

Þessi færsla er mestmegnis um hátalarasmíð mína, þú þarft ekki að lesa hana alla hafði bara voðalega lítið annað að skrifa um...
En þú þarft að skilja eftir comment.   :D

Klukkan rúmlega 1, var niðurfrá að smíða, gengur allt vel, vildi bara flýta aðeins fyrir mér á morgun og var þessvegna lengi... (Æjj skiptir ekki máli hvort að maður er að smíða eða horfa á sjónvarpið frameftir... maður verður alveg jafn þreyttur af því.)
á morgun eftir vinnu stefni ég á að klára sem mest af hátölurunum. Jafnvel koma fyrstu umferð á þá, hef núna tæpa viku til að klára þetta. En þetta er það langt komið, verður vonandi búið fyrir mánudag.

Svona fyrir þá sem ég hef ekki nefnt þetta við, og eru að hugsa... why.... afhverju kaupir hann ekki bara hátalara útí búð?

Þá er svarið einfallt, hátalarasmíð hefur mér alltaf fundist spennandi, og ég hef smíðað bassabox í bíla og átt við græjur í bílum, en mig hefur alltaf langað í almennilega hátalara til að hafa innandyra, fyrir rúmu ári síðan var ég virkilega að hugsa um að kaupa mér gólfstandandi hátalara, og var búinn að ákveða hverja ég ætlaði að kaupa, en síðan læddist það að mér að mig langaði meira til að smíða mína eigin, svo ég lofaði sjálfum mér hátíðlega að þegar ég flytti út yrði ég búinn að smíða mér par af gólfstandandi hátölurum til að hafa í stofunni. (Þá vissi ég bara ekki að það yrði svona stutt í að ég flytti út. Hvað þá til útlanda.)

Ég er bara svo heppinn að eiga svona æðislega kærustu því þegar ég sagði henni þetta, þá var hún fyrst soldið efins, en sannfærðist eftir létt spjall um þetta væri eitthvað sem mig langaði virkilega að gera, og gaf mér leyfi á að smíða hátalara til að hafa í stofunni okkar.

Jæja.... svefninn kallar... og takk aftur Gréta! þú ert lang best!
Bless bless

Posted at 1:06:08 am by Dori_Ess
Comments (2)  

12.12.07
Friðarsúlan barasta farin... (í bili)

Jæja, langt síðan seinasta færsla var hripuð niður.

Byrjum á byrjuninni, ég var að koma heim af verkstæðinu, er langt kominn með hátalarana mína, er búinn að líma þá saman og skrúfa og negla og kítta, og rúnna kantana, nú á ég hinsvegar eftir að setja saman crossover sem er eiginlega heilinn fyrir hátalarana, þ.e.a.s. lætur dýpri hljóðin fara í viðeigandi hluta hátalarans og þá hærri fara í hinn. og setja seinustu hliðina á hátalarana sem ég get gert um leið og ég fæ sent dótið í crossoverinn sem ætti að gerast þá og þegar.
Þá á ég bara eftir að grunna, pússa og lakka sem tekur ekkert mjög langan tíma. Ég vissi að ég myndi klára þetta, hefði samt viljað vera búinn að þessu fyrr, en ég er ekki búinn til úr tíma svo ég nota tímann sem ég hef.

Ég á eftir að klára að pakka mér niður samt, það verður gert um helgina samhliða því að klára hátalarana. Þetta þarf bæði að vera búið fyrir fimmtudaginn í næstu viku svo þið sjáið að ég hef nægan tíma!

Ég er nú búinn að sakna kærustunnar minnar ansi mikið seinustu vikurnar og núna eru allt í einu bara 9 dagar þangað til að ég hitti hana. Svona tilfinning eins og þegar maður er að fara til útlanda en finnst það ekki vera að fara að gerast í alvörunni. :D
Sem gildir eiginlega líka um 3. janúar... finnst þetta hálf óraunverulegt allt saman!

Ætla síðan svona í lokin að mæla með www.myspace.com/wellwhoknew  þeir eru svo helvíti góðir strákarnir.
Og sömuleiðis ætla ég að mæla með útivist.... dauðlangar út í náttúruna... finnst ég vera búinn að vera inni núna endalaust....

Jæja, þetta er komið fínt! Takk og Bless


Posted at 12:32:57 am by Dori_Ess
Comments (4)  

7.11.07
Danmörk eftir 58 daga.

Jæja... Nú er ég farinn að skipuleggja brottför mína, undirbúa og gera tilbúið fyrir fluttninginn.

Tveir mánuðir eru fljótir að líða, vona að ég eigi eftir að hitta sem flesta á þessum tæpu tveim mánuðum.

Annars eru bara 44 dagar í að hún Gréta komi á klakann sem er svona mesta tilhlökkunarefnið núna... það er eiginlega minna en einn og hálfur mánuður!

Þannig að ef ég vil hafa gaman í jólafríinu og slappa af seinustu dagana mína á landinu... þá þarf ég að gjöra svo vel að vera búinn að gera allt fyrir 20 desember.

Sjáum hvernig það gengur, allavega miðað við vinnuplanið núna þá á ég aðeins 6 frídaga eftir þangað til 20 des.

Annars á ég bara um 30-32 virka vinnudaga eftir hér fyrir jól.

Jæja heyri í ykkur.

 


Posted at 2:43:58 pm by Dori_Ess
Comments (8)  

1.11.07
Kappát

Jæja, ég fór í sund í gær eftir ræktina með Baldri, og við héldum uppi hefðinni og fórum og fengum okkur franskar pylsur í pylsuvagninum fyrir utan, reyndar hafa þeir selt svo mikið af frönskum pylsum og allskonar pylsum að þetta er enginn vagn lengur heldur er er þetta orðin einn flottasti pylsubarinn á íslandi (nú veit ég að Bæjarins Bestu eru alltaf bestar, en það toppar enginn frönsku pylsurnar þarna) og þegar ég sat uti í kuldanum með Balla, fór að rifjast upp fyrir mér að þegar maður var yngri og óreyndari, þá átti maður það til að fá sósu yfir sig allan... Sinnepssósan á frönskum pylsum er mjög góð... og það er bara eitthvað við að borða franskar pylsur eftir sund... en allavega ég fór að hugsa, hey þetta kemur ekki fyrir lengur, sósan bara helst í brauðinu...

Hvernig væri ef ég myndi bara útskýra afhverju það er?

við vogskælingar erum sennilega allir pró í að borða franskar pylsur eftir gríðarlegt magn af frönskum pylsum sem við höfum borðað eftir skólasund.

Galdurinn er einfaldur... Ekki kreista.... þá fer allt út um allt... en heldur ekki halda of laust því að brauðið á það til að vera soldið "seigt" það þarf að bíta það í sundur, og þegar þú býtur passar þú þig að endinn sé alveg uppí munninum á þér... þannig a sósan sem fer úr brauðinu lendi allavega uppí þér en ekki á þér.

Vil nefna það að það er helvíti gott tilboð hjá þeim 2x Franskar pylsur + prins + gos á 660 krónur, kíkið og æfið ykkur í æfaforni list við að borða mat án þess að subba ykkur út .

Gangi ykkur vel.

Posted at 1:05:24 pm by Dori_Ess
Comment (1)  

31.10.07
Ólögleg efni...

Jæja, langt síðan maður hefur bloggað og svona... þó hef ég farið til útlanda, farið tvisvar sinnum á djamm eftir það og unnið í lottóinu síðan ég bloggaði síðast og ekkert skrifað um það.

(Vann ekki í lottóinu... vantaði bara tilkynningu númer 3)

Svona það fréttnæmasta síðan seinasta færsla var rituð auðvitað danmerkurferðin, ég lagði af stað laugardaginn 13. okt beið úti á flugvelli í góðan tíma, gerðist svo heppinn að hlíða á kvennakór sem var á leið til Japan ef ég man rétt.
Þær sungu þarna nokkur þægileg lög (klukkan ekki orðin 7) og hljómburðurinn í flughöfninni okkar er "something else" þetta var frekar magnað... eins og að sytja inni í hátalara.

Flugið síðan tíðindalaust... og eftir það steig ég upp í lest, og engan skal undra að ég hafi stigið upp í vitlausa lest... jæja ég lenti á lestarstöðinni í kaupmannahöfn, fékk mér að borða og beið í um 2 klukkutíma, sem voru fljótari að líða en mig hefði grunað.

Loksins kem ég mér fyrir í glæsilegri lest og byrja að horfa á bíómynd á mp3 spilaranum, en síðan kemur kona og segir, "sorry, you are in my seat sir..."
og ég hugsa, djöfull er lestakerfið í danmörku advanced númeruð sæti og alles...
Svo ég stend upp og leita að númeri á miðanum mínum en finn ekkert svo ég hlamma mér bara niður í næsta lausa sæti en viti menn einhver annar átti það sæti svo ég bað hana um að kíkja á miðann minn og útskíri fyrir henni að mér hafi bara verið sagt að fara upp í þessa lest og ég kunni ekkert á þetta, hún horfir vandræðalega á mig og segir "this is actually the First class" you have to walk through there and there you might find a seat" svo ég tek mig til og byrja að labba af stað, finn auðvitað ekkert sæti... öll full af gömlu fólki og fjölskyldufólki svo ég bara tók töskuna mína og settist á hana og sat á henni alla leiðina og sat af og til bara á gólfinu. (3 klukkutímar)

Kom síðan á lestarstöðina í Ã…rhus þar sem ég hitti Grétu mína aftur.
Tókum síðan strætó heim til hennar og hún síndi mér íbúðina sína sem er alveg virkilega kósí! hlakka til að flytja þangað eftir áramót.
Hitti vinkonu hennar, hana Helle í fyrsta skiptið (sem var reyndar skrítið, því ég hef heyrt svo mikið um hana að mér fannst ég þekkja hana.)
   
    En annars var þessi ferð góð í heildina, búðarferðir, bíóferð, héldum uppá afmælið hennar Sunnu J. á Sushi stað og fórum síðan og spiluðum spil það sem eftir lifði.
Fórum einnig á Roisin Murphy tónleika sem voru alveg frábærir tónleikar! góð skemmtun, góð lög og glæsilegt performance! two thumbs up ( myndi setja fleiri þumla upp en á bara ekki...)
Fórum líka í þriggja rétta máltíð og víndrykkju til Bínu og Atla, sem var frábær kvöldstund, vona að það verði endurtekið oftar en einu sinni eftir áramót.
Og daginn áður en ég fór fórum við Gréta í aðra heimsókn til þeirra, í þetta skiptið var okkur boðið upp á mjólk og heimabakaðar möffins! ekki slæmt það.
Annars hjóluðum við mikið og ég á bremsulausu hjóli í umferð sem ég var að öllu leiti ókunnugur þannig lagað... mjög hughreystandi...

En við vorum á fullu allan tímann að skoða búðir, byggingar, hjóla... taka vitlausa strætóa, laga til í íbúðinni og hitta fólk. svo ég er örugglega að gleyma slatta sem ætti að vera í þessari færslu, en gildir einu í heildina mjög góð ferð!

En leiðin heim, ég fór út á flugvöll í einu hugsanlegu lestinni, í þetta skiptið neyddist ég til að taka first class, sem var mjög þægilegt (útaf því að hitt var uppselt) en útaf þessu þurfti ég að bíða í rúma 3 klukkutíma á flugvellinum, ég bara ráfaði um og skoðað allt og ekkert borðaði og horfði út um glugga... og beið.
Fór síðan í bókabúðina, skoðaði í fullt af tímaritum og bílablöðum og tölvunördablöðum og fór síðan að skoða svona ferðamannabæklinga, opnaði bækling um ísland einhverstaðar vel nálægt miðju og viti menn fyrsta sem blasir við mér er Jóhann frændi og Gauja í sundi, ég lokaði samstundis, og opnaði aftur og já þetta voru þau... skrítið...

En þegar ég var loksins að labba í átt að flugvélinni mæti ég Hinna og Láru frænku sem voru að koma með flugvélinni sem ég var að fara með. I flugvélinni sest ég niður og Fanney úr vogaskóla kemur og sest við hliðiná mér, heilsa síðan honum Lofti sem leigir hjá pabba (hann er bólstrari, það kemur meira við sögu á eftir)
en allavega þá er ég mjög flughræddur ef það koma ókyrrðir... og þetta flug var lengi vel í það mikilli ókyrrð að sætisbeltaljósin voru á... mjög stressandi, Fanneyu fannst þetta hálf fyndið að vera svona stressaður út af engu, en henni fannst samt sniðugt að byrja samræður með því að segja, "ég hef aldrei fundið svona mikinn hristing á flugvél" hehe...
en vélin lenti í keflavík og allt í góðu, (eftirá var flugið ekki svo slæmt)

En á flugvellinum erum við send að vitlausu færibandi, ég bíð og horfi á töskurnar fara í nokkra hringi, og aldrei kemur mín.. en nei þá var hún bara fyrir aftan mig að fara í jafn marga hringi...

Síðan fer ég í gegnum tollinn og þarf að láta skanna dótið mitt allt í góðu með það nema hann Loftur kemur til mín (hann lennti líka í þessu) og segir "Hva, þú hlítur að vera svona grunsamlegur" ég svaraði "Já... en aldrei jafn grunsamlegur og þú" kíminn. (skrítið orð sem á þó við hér haha) og hann hlær að þessu þangað til ég segi, "Hvað ert þú alltaf að flytja inn ólögleg efni?" Loftur saup kveljur og sagði "HVA, ekki einu sinni grínast með þetta hér!", ég: "nú afhverju ekki, ég er nú bara að tala um gardínuefni og bólstrunarefni".
Kannski svona "you had to be there" móment... en mér fannst þetta fyndið.

Síðan beið ég bara eftir að vera sóttur.

Nenni eiginlega ekki að skrifa meira núna... blogga frekar fljótlega aftur.
skemmtið ykkur.
Bless!

Posted at 2:07:08 pm by Dori_Ess
Comment (1)  

2.10.07
IT'S ALIVE!

Hver kannast ekki við tilfinninguna sem myndast þegar maður sofnar yfir kvikmynd eða þætti, og einhverju seinna hálf vaknar maður við það en er ekki tilbúinn að opna augun og veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið, ókunnug hljóð og raddir, maður verður hálf skelkaður svona augnabliki áður en maður áttar sig á því að maður gleymdi að slökkva á tölvunni eða sjónvarpinu... Og þá hugsar maður ohh þá þarf ég að gera það núna!

En þetta var alveg random pæling sem var ekki með neina niðurstöðu... vildi bara skrifa eitthvað sjáið til því þegar maður er að vinna alla daga kannski langt fram á kvöld... þá hefur maður ekki tíma til að gera neitt sem gæti talist fréttnæmt.

Þannig er það nú bara.

En fréttnæmt...? Bíllinn minn er á sölu, ég var nú svosem búinn að nefna það hér að hann væri á leiðinni á sölu.
Bróðir minn hann Eyþór er með þriðjastigs tognun og er í gifsi með aulaprik,
þannig að núna ek ég um á Desert Queen! Desert Queen Like.no.other!

Fer annars til Danmerkur eftir um viku og 4 daga, hlakka til að fá smá frí, þá fáið þið klárlega færslu með einhverju skemmtilegu að lesa! það er klárt mál!

En núna ætla ég bara að sökkva mér aftur í vinnu... þangað til næst!

P.s afþví að ég hef ekki rifjað þetta upp lengi....

Góðan dag, góðan dag.
Glens og grín, það er mitt fag.
hopp og hí, trallalí.
Uppá nefið nú ég sný!
Ef þú afi gamli aðeins finndir
einar 10 teiknimyndir!
Viltu setja, viltu setja, viltu setja þær tækið í!


Posted at 12:09:34 pm by Dori_Ess
Comments (2)  

Previous Page Next Page