<< April 2008 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



30.4.08
Fritzl misskilinn....

Nei.... aldeilis ekki, þvert á móti er það herra Fritzl sem misskildi allt, gerði síðan sitt besta... sem endaði á því að vera efni í hryllings/drama mynd framtíðarinnar.
"Hryllingskjallarinn"... þessi mynd á eftir að líta dagsins ljós einn daginn "A horrible secret burried under your home"... held að ég eigi eftir að heyra bíóröddina segja þessi orð...

Á ekki orð...

En að öðru máli sem er þó tengt þessu á sinn hátt...
 
Já, þú hafðir rétt fyrir þér ef þú giskaðir á *** *****...
       Maðurinn sem nauðgar skynviti þjóðarinnar á einum af fréttavefjum landsins...
Ég er búinn að fá mig fullsaddann af þessum illa skrifuðu pistlum hans, þeir eru annar hryllingur... ætla að koma með smá upptalningu á því sem fór í taugarnar á mér við lesningu dagsins....

1# Vinur Fritzl er í losti yfir fréttunum..... segist ekkert skilja í þessu.... (Ef maðurinn væri í losti, hefði hann væntanlega ekki tjáð sig um málið.)

2# Fritzl fór til Taílands eftir að hún var búin að vera í tólf ár í dýflissunni... árið 1988 (Í minni bók væri hún þá búin að vera í 32 ár í þessum kjallara... en hún var bara í 24.)

3# Ungur maður horfði á kærustuna sína deyja í baksýnisspeglinum.... (Kærastan var 36 ára gömul... og hann var eldri... óþarfi að leggja áherslu á ungur maður þegar fólk er komið yfir 30 að mínu mati.)

4# Gullskip fannst... Hann var fyrsti vestræni sæfarinn sem sigldi fyrir Góðrarvonarhöfða. (Þetta er reyndar frekar óljóst en mér finnst ósennilegt að staðnum hafi verið gefið þetta nafn á íslensku...)

5# Staðfest að öll fjölskylda Rússakeisara fundin... leifar sem fundust í fyrra voru víst jarðsett árið 1998 í Keisaragrafhýsinu... (skil ekki...)

Upptalningin verður ekki lengri...

Meiri rugl færslan... biðst afsökunar.


Posted at 8:12:34 pm by Dori_Ess

 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry