<< April 2008 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



6.4.08
Vinna eður ei ?

Afsakið seinaganginn á þessari blessuðu færslu...

En þannig er mál með vexti að daginn sem ég fór til London var ég boðaður á fund hjá fyrirtæki sem vantaði starfsmann og þar var mér tjáð að þeir ættu von á einum öðrum þann daginn og valið stæði á milli okkar tveggja, þeir voru búnir að vera að leita lengi og fara í gegnum þónokkuð magn af umsóknum, sá sem ég spjallaði við sagði að þetta yrði útkláð á símafundi á milli toppana í fyrirtækinu eftir báða fundina við okkur og að hann myndi þá hafa samband við mig seinna um daginn og láta mig vita hvort að ég fengi starfið eður ei. Svo nokkrum klukkutímum seinna, ég alveg að deyja úr spenningi yfir London ferð og þessu símtali kom loksins símtalið sem ég hafði beðið eftir í nokkra mánuði.

Þetta var yfirmaðurinn sem ég hafði rætt við á fundi fyrr um daginn, hann spurði mig hvort að ég hefði ennþá áhuga á starfinu og sagði mér að ef svo væri þá væru þeir búnir að ákveða að ég væri rétti maðurinn í starfið.

Svo var ákveðið að daginn sem ég kæmi frá London myndi ég mæta og skrifa undir ráðningarsamning, sem ég og gerði.

Og seinasta vika var fyrsta vikan mín í starfi hjá þessu fyrirtæki sem Grafískur hönnuður. Smile

Fyrsta vikan gekk vel og starfið er mjög spennandi.

Smell you later!

Posted at 8:09:12 pm by Dori_Ess

Spíra
April 9, 2008   05:41 PM PDT
 
HA? HVAR??
grafískur hönnuður?? ég á ekki orð! innilega til hamingju
(og hér er ég sveitt að reyna að komast í lhí til að læra það omg)

og já þú ert svo "heppinn" að missa alltaf af mér, ég er alveg lúmskt mikið inná msn :Þ
gaman að heyra frá þér drengur!!
Erla Gerður Viðarsdóttir
April 9, 2008   02:33 PM PDT
 
hei til hamingju með vinnuna, ótrúlega flott!
sunsun
April 6, 2008   10:45 PM PDT
 
vúúúhhhúúú..til lukku snúllumús :)
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry